Leikhúsferð

Ágætu félagar. Nú hefur leikhúshópurinn okkar sett upp fyrstu leikhúsferðina en við ætlum að sjá Deleríum Búbónis í Borgarleikhúsinu fimmtudaginn 16. nóvember 2023.
Lagt verður af stað frá Þorlákssetri kl. 18:45. Rútan er félagsmönnum að kostnaðarlausu þ.e. félagið greiðir rútuna.
Miðarnir eru seldir inni á Sportabler þar sem þið keyptuð námskeiðin o.fl. og kostar hver miði kr. 9.400 og 53 miðar/sæti eru í boði.
Síðasti dagur til að kaupa miða er sunnudagurinn 15. október
 en það er samkvæmt regum leikhússins sem þarf að fá upplýsingar um þátttökufjölda mánuði fyrir sýningu. Þar sem tíminn til að kaupa miða er stuttur biðjum við ykkur að láta vita í kringum ykkur en þessi tilkynning fer fram hjá einhverjum. Þetta verður að sjálfsögðu auglýst á heimasíðunni og með tölvupósti og á facebook.

0 replies

Skildu eftir svar

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *