Jólahlaðborð
Þessa tilkynningu fengum við frá STRACTA hotel fyrir helgina.
- Fjöldatakmörkun verður 50 manns í rými og munum við vera með 50 manna hólf með sér jólahlaðborði í hverju fyrir sig.
- Afgreiðslutími styttist til 22:00 og þurfa gestir að vera farnir 23:00. Í ljósi þess hvetjum við gesti til að mæta snemma í jólahlaðborðið sem mun hefjast klukkan 18:00.
- Grímunotkun verður skylda þegar gengið er að og frá borði sem og þegar matur er sóttur í hlaðborðið.Boðið verður upp á einnota hanska og skipt verður ört um öll áhöld í hlaðborðinu.
- 1 metra regla verður í gildi.
- Settar verða upp fleiri spritt stöðvar og gestir hvattir til að spritta sig ört.
- Þrif verðar aukin á sameiginlegum snertiflötum eins og salernum.
- Allt okkar starfsfólk mun fara í covid-próf áður en það mætir á vakt
- Viljum við hvetja gesti okkar til að gera slíkt hið sama fyrir komu.
Förum varlega og virðum tilmæli heilbrigðisyfirvalda.
Kær kveðja,
Starfsfólk Stracta Hótel
Ása gjaldkerinn okkar talaði við þau í morgun og var sagt að við þyrftum ekkert að hafa áhyggjur af covid prófi. Við erum flestöll ef ekki öll búin að fá þriðju sprautuna. Við þurfum samt að vera með grímur í rútunni og þegar við förum inn á hótelið
Ef einhver vill fara í hraðpróf þá er það tekið í bílageymslunni undir krónunni það er opið milli 10-12 en þið verðið sjálf að panta prófið á https://www.heilsuvera.is/ hver fyrir sig
FARIÐ VERÐUR FRÁ ÞORLÁKSSETRI LAUGARDAGINN 20. NÓVEMBER KL. 17:45.
Gott að vera tímanlega.
HEILSUVERA.IS
Heilsuvera – Vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar | Heilsuvera
Skildu eftir svar
Want to join the discussion?Feel free to contribute!