Þorlákssetur, miðvikud. 15. febrúar kl. 13:00
kemur Jakob Veigar myndlistarmaður í heimsókn hann er gestur í listamannahúsinu Varmahlíð.
Jakob Veigar er velmenntaður byggingartæknifræðingur og vann í N-Noregi. Hann lauk námi í Listaháskóla Íslands, framhaldsnámi í Vín í Austurríki þar sem hann hefur haft annan fótinn síðasta árið. Hann málaði og samdi einnig tónlist, smáskífan Darkness var afrakstur þeirrar vinnu og kom út árið 2011. Öll umslögin voru handmáluð af Jakobi og tölusett.
„Ég sagði í gríni að ég vildi komast inn í skólann sem hafnaði Hitler á sínum tíma,“ segir Jakob og sú varð raunin. Þetta skiptinám er oftast í eina önn en honum bauðst að vera lengur og sótti hann því um undanþágu til þess. Þar kynntist hann vel Kirsi Mikkola, sem er prófessor við þennan virta skóla og er virt finnsk myndlistarkona. „Við urðum góðir vinir og hún tók mig alveg í gegn og breytti mér mjög mikið. Hún vildi endilega að ég kæmi aftur og yrði hjá sér,“ segir Jakob. Á þessu ári heldur hann til Austurríkis og vinnur undir leiðsögn Mikkola.
Jakob, er fæddur og uppalinn í Hveragerði, segir bæjarbúa listhneigða upp til hópa. Þeir standa líka þétt við bakið á sínu fólki en Hljómlistarfélagið í Hveragerði, sem er félagsskapur ungra manna, styrkti Jakob til náms þegar hann var í skiptinámi í Vín. Hann er einstaklega þakklátur fyrir þann stuðning, sem hann segir lýsa samheldni bæjarbúa vel.
Miðvikudagur. 8. febrúar kl 13:00
Jakob Veigar myndlistamaður kemur í heimsókn
hann er gestur í Varmahlíð.
Hann segir frá því sem hann sýslar með.
Allir velkomnir
FEBH Þorlákssetri miðvikud. 1.febrúar kl 13:00 Því miður féll niður heimsókn Ljóðaseturs Hveragerðis s.l. miðvikudag vegna óviðráðanlegra ástæðna. En þess í stað verður kvæðastund í léttum dúr með Kristjáni Runólfssyni, Sæunni Freydísi Grímsdóttur, Gústaf Óskarssyni og Gísla Garðarssyni, miðvikud. 1. feb. Kl 13:00. Kæru félagar allir sem hafa gaman af kveðskap , komið og takið þátt og verið með okkur. Fræðslunefndin.
Miðvikudagur 15. febr.

Miðvikudagsfundur 8. febr.
Miðvikudagur. 8. febrúar kl 13:00
Jakob Veigar myndlistamaður kemur í heimsókn
hann er gestur í Varmahlíð.
Hann segir frá því sem hann sýslar með.
Allir velkomnir
Aðalfundur
Aðalfundur
Félags eldri borgara í Hveragerði verður haldinn fimmtudaginn 16. febrúar
kl. 14: 00 í Þorlákssetri.
Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffihlaðborð kr. 1000.
Stjórnin
Frá uppstillingarnefnd.
Tilkynning frá uppstillingarnefnd
Stjórn FEBH hefur tilkynnt að aðalfundur félagsins verður haldinn 16. febrúar 2017 kl. 14:00 í Þorlákssetri, húsi félagsins.
Uppstillingarnefnd hefur lokið störfum og tilkynnir hér með niðurstöður.
Kjörtímabili í aðalstjórn hefur lokið Kristín Dagbjartsdóttir og gefur hún kost á endurkjöri.
Kjörtímabili í varastjórn hefur lokið Helga Baldursdóttir og gefur hún kost á endurkjöri.
Skoðunarmenn ársreikninga ber að kjósa árlega og eru þeir Garðar Hannesson og Sigurjón Guðbjörnsson. Þeir gefa kost á endurkjöri.
Fulltrúar á þing LEB eru tilnefndir til kjörs og eru þeir Helga Haraldsdóttir og Egill Gústafsson.
Þessar tillögur bárust uppstillingarnefnd fyrir 18. janúar 2017.
Hveragerði, 1. febrúar 2017
Jóna Einarsdóttir, Ingibjörg S. Guðjónsdóttir og Sigurjón Guðbjörnsson
Miðvikud. 1. febr.