Jólahlaðborð á Hótel Örk.

Eins og undanfarin ár býður Hótel Örk upp á jólahlaðborð með dagskrá og dansleik 4. desember 2017. Stjórnandi er Gunnar Þorláksson.
Verð er kr. 8.000.- pr. mann Einnig er boðið upp á gistingu í 2ja manna herbergi fyrir þá sem það vilja og er verðið kr. 14.000.- með morgunmat og öllu pr. mann aukagjald í einbýli kr. 3.500.-

Þeir sem hafa áhuga vinsamlega skrifi sig á lista í Þorlákssetri fyrir 1. nóvember n.k.

Frá leikhúsnefnd

Í boði er önnur leikhúsferð nú í Borgarleikhúsið að sjá „Guð blessi Ísland“ þetta er forsýning (generalprufa) sem verður fimmtudaginn 19. október 2017 kl. 20.00. Ekkert kostar inn á leiksýninguna aðeins kr. 1.500.- á mann með rútu sem fer frá Þorlákssetri kl. 18.30. Listi liggur frammi í Þorlákssetri einnig má hafa samband við Kristínu Egilsdóttur í síma 896 3436, Steinunni Þórarinsdóttur í síma 868 6543 eða Sigurð Magnússon í síma822 4211

Fræðsla og spjall 4. okt.

Minnum á fræðslu- og skemmtidagskrána miðvikudaginn 4. okt. kl. 12.00 í Þorlákssetri Valgerður Guðmundsdóttir útbýr „Gulrótarsúpu“ af sinni alkunnu snilld.  Sigurður Blöndal dregur saman lið í spurningakeppninni og Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri mætir og fræðir okkur um flutninga bæjarskrifstofunnar og hvað er á döfinni í bæjarmálum.

Sýningu á „Föðurnum“ frestað.

Vegna óviðráðanlegra orsaka verður sýningu á „Föðurnum“ í Þjóðleikhúsinu sem vera átti 6. okt. frestað til 11. okt.

Súpufundur miðvikud. 27. sept. kl.12.00

Minnum á súpufundinn miðvikudaginn 27. sept. 2017 kl. 12.00 Garðar Gíslason hrl. mætir og fræðir okkur um erfðamál og svarar fyrirspurnum.