Aðalfundur FEBH 2018

Aðalfundur Félags eldri borgara í Hveragerði verður haldinn fimmtudaginn 15. febrúar  kl. 14: 00  í Þorlákssetri.

Fundaefni:

Skýrsla stjórnar

Skýrsla gjaldkera

Kosning stjórnar og skoðunarmenn reikninga

Önnur mál

Kaffihlaðborð kr. 1.000.-

 

Stjórn FEBH

Leikhúsferð

Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna kynnir leikritið „Sálir Jónanna ganga aftur“ Hugleiksverk, gamanleikrit um örlög Jónanna.

Áætlað er að FEBH fari laugardaginn 10. febrúar að sjá þetta verk.

Sýningartími er kl. 20.00 og sýnt er í Aratungu

Verð er kr. 2.000.-

Verð í rútu kr. 1.500.-  Samtals kr. 3.500.- pr. mann

Farið verður frá Þorlákssetri en tímasetning kemur síðar

Listi liggur frammi í Þorlákssetri einnig má hafa samband við

Kristín Egilsdóttir sími 896 3436

Steinunn Þórarinsdóttir sími 868 6543

Sigurður Magnússon sími 822 4211

Gjöld á vorönn

Nú er komið að gjaldaga á eftirtöldum gjöldum:

Árgjald  kr. 4.000.- (fyrir árið 2018)

Línudans kr. 3.000.- (önnin)

Stólaleikfimi kr. 2.500.- (önnin)

Sundleikfimi kr. 3.500.- (önnin)

Útskurður kr. 6.000.- (önnin)

Hverafuglar kór kr. 5.000.- (önnin)

Fræðsla og spjall

 Miðvikudaginn 31. janúar 2018 kl. 13.00

Heiðar Jónsson og Jenný Ólafsdóttir frá Úrval Útsýn kynna sólarlandaferðir 60+ til Benidorm, Almeria og Tenerife.

Miðvikudaginn 7. febrúar 2018 kl.13.00

Njörður Sigurðsson: „Ekkert annað í farvatninu en að drepa“         frásögn af tilraun bresks togara til að sigla niður trillubát frá Patreksfirði sumarið 1959.

Miðvikudaginn 14. febrúar 2018 kl. 13.00 

Jóna Einarsdóttir: Ferðasaga.

Kaffi og meðlæti alla dagana

Þorrablót

Þorrablót FEBH verður haldið í Reykjafossi Austurmörk 2 v/Breiðumörk miðvikudaginn 24. janúar n.k. kl. 19.00. Verð kr. 6.000.- pr. mann. sem má greiða í Arion banka eða heimabanka reiknnnr. 0314-26-52 kt. 691189-1049 merkt þorri.

Á matseðli:
Hefðbundinn þorramatur, heit lambasteik, heitt saltkjöt ásamt meðlæti.

Dagskrá:
Kórsöngur, þorrakvæði, minni karla og kvenna o.fl.

Hafa má með sér eigin drykki að heiman.“