Fræðsla og spjall miðvikudaginn 28. febr.

Fræðslu- og spjallfundur með Magnúsi Þór tónlistarmanni, sem vera átti s.l. miðvikudag, verður haldinn á miðvikudaginn kemur, 28. febr. kl.13.00 í Þorlákssetri

Miðvikudagsspjall fellur niður.

Vegna mjög slæmrar veðurspár á morgun miðvikudaginn 21. febrúar fellur niður fræðslu- og spjalltíminn með Magnúsi Þór Sigmundssyni tónlistarmanni sem átti að vera Vonandi verður hægt að halda það síðar.

Fræðslu- og spjallfundir næstu miðvikudaga:

Næstu fræðslu- og spjallfundir verða:
Miðvikudaginn 21. febrúar kl. 13.00
Magnús Þór Sigmundsson tónlistarmaður verður með eitthvað skemmtilegt
Miðvikudaginn 28. febrúar kl. 13.00
Ljóðasetur í umsjón Sigurðar Blöndal
Kaffi og meðlæti.

Frá gjaldkera varðandi greiðslu félgsgjalda til FEBH

Vakin er athygli á að þeir félagsmenn FEBH, sem greiða árgjaldið fyrir 1. mars, spara sér að fá senda innheimtuseðla með tilheyrandi kostnaði.

Vegna sundleikfimi FEBH á Heilsustofnun.

Vakin er athygli á að leikfimitíminn hefur verið styttur í 30 mín., en fólki er velkomið að koma fyrr og fara í pottana. Til að þjálfunartíminn nýtist sem best, er æskilegt að allir séu komnir tímanlega og tilbúnir í lauginni þegar tíminn á að hefjast.