Námskeið á vorönn 2024

Vatnsleikfimi er alhliða og góð þjálfun í vatni fyrir allan aldur og hefur lengi verið mjög vinsæl líkamsrækt. Þjálfun í vatni veitir létta og viðráðanlega mótstöðu, eykur vöðvatyrk, styrkir hjarta og lungu, eykur þol og sveigjanleika, lækkar blóðþrýsting og er sérlega holl og skemmtileg samvera með öðru fólki.
Kennari: Rakel Magnúsdóttir
Staður: Baðhúsið Heilsustofnun
Tímabil: 22/1 – 25/3
Hópur 1. Kl: 16:30 – 17:15
Hópur 2. Kl: 17:15 – 18:00
Hópur 3. Kl: 18:00 – 18:45
Fjöldi: 24 í hverjum hópi.
Verð: 8.500

H.A.F. Yoga í vatni
Á námskeiðinu er unnið með yoga stöður í heitari laug þar sem lögð er áhersla á einfaldar flæðisæfingar, öndun og hugleiðslu. Yoga iðkun í vatni slakar og styrkir sérstaklega vel á öllum djúpvöðvum, viðheldur hreyfigetu liða og losar um spennu og streitu. Fljótandi og nærandi slökun í flotbúnaði og hugleiðsla í heitum potti, er í lok hvers tíma.
Kennari: Steinunn Aldís Helgadóttir
Staður: Baðhúsið Heilsustofnun
Tímabil: 25/1 – 21/ 3
Kl: 17:00 – 17:45
Fjöldi: 14
Verð: 12.000
Ef þessi hópur fyllist þá höfum við leyfi fyrir að opna á annan 14 þátttakenda
hóp, á sömu dögum kl: 18:00 – 18:45

Yoga Nidra með tónheilun
Yoga Nidra með tónheilun er hugleiðsluform, þar sem iðkendur liggja á dýnu og látur fara vel um sig undir teppi. Kennarinn leiðir þátttakendur inn í djúpa meðvitaða slökun, þar sem hugurinn er í ástandi líkt og milli svefns og vöku. Í Yoga Nidra gefst tækifæri til að losa um spennu í líkamanum, bæta svefn, lækka blóðþrýsting og styrkja andlegt jafnvægi. Þátttakendur eiga að taka með sér teppi í tímana.
Kennari: Helga Björk Bjarnadóttir
Staður: Kapellan Heilsustofnun
Tímabil: 23/1 – 26/3
Kl: 18:00 – 18:45
Fjöldi: 15
Verð: 9.000

Spænska
Námskeið þetta er sniðið að þeim sem hafa áhuga á spænsku og spænskri menningu, stefna á ferðalög til spænskumælandi landa eða dvelja þar til lengri tíma. Skemmtilegt og fjölbreytt námskeið þar sem grunnurinn að spænsku er byggður upp með fjölbreyttum aðferðum.   Áhersla er lögð á að: læra grunninn í málfræði, skilja einföld samtöl og spurningar, ná samhengi á einföldu prentuðu efni, matseðlum, auglýsingum o.fl  bera fram einfaldar en algengar setningar, heilsa, panta mat, borga í búðum og kynnast spænskri menningu, svo sem tónlist, matarhefðum og hátíðum.
Kennari: Droplaug Guttormsdóttir
Staður: Þorlákssetur
Tímabil: 27/2 – 22/3
Þriðjudaga kl: 17:30 – 19:00 föstudaga kl. 10:30 – 12:00 (þetta er eitt námskeið)
Fjöldi: 10
Verð: 7.500

Nýárskveðja

Smellið á miðja myndina til að stækka hana.

Félagsstörf í forystu í Hveragerði

Félag eldri borgara í Hveragerði hefur í haust kastað sér í djúpu laugina með nýjungar á haustmisseri sem nú hefur komið í ljós að var gæfuspor. Stjórnin hafði frá því sl. vor átt í viðræðum við bæjarstjórann um hvort ekki væri hægt að styðja við félagið með að leggja til starfsmann í hlutastarfi á skrifstofu okkar til aðstoðar við skráningar, tölvuvinnslu, almenna upplýsingagjöf ofl. fyrir félagsmenn. Með kröftugu starfi félagsins síðustu árin hefur allt utanumhald vaxið mjög og lagst þungt á stjórnarmenn sem vinna launalaust. Ákveðið var fyrir haustmisserið að taka í notkun skráningarkerfið Sportabler til að skrá sig á námskeið og viðburði. Þetta er kerfi sem notað er hér fyrir íþróttir og félagsstarf. Þetta var erfitt fyrir marga, sérstaklega þá sem ekki eru vanir snjalltækjanotkun. Stjórnin réði því starfsmann í hlutastarf í einn og hálfan mánuð til að aðstoða við skráningar haustsins.
Nú hefur Bæjarráð Hveragerðisbæjar falið frístundamiðstöðinni Bungubrekku það verkefni að sinna þjónustu og stuðning við Félag eldri borgara i Hveragerði. Frístundamiðstöðin Bungubrekka mun sinna almennri þjónustu við stjórn og félagsmenn, halda utan um skráningarkerfi starfsins og félagatal ásamt því að aðstoða við bókhald og gerð ársreikninga.
Frístundamiðstöðin mun einnig taka markvissan þátt í skipulagningu námskeiða, hópastarf og annara viðburða innan félagsins í samráði með stjórn. Ákveðinn starfsmaður innan Bungubrekku verður sérstakur tengiliður við Félag eldri borgara og verður með fasta viðveru á skrifstofu félagsins og mun ásamt forstöðumanni Bungubrekku sinna verkefnavinnu og tryggja framþróun félagsins. Það sem gerir þessar áætlanir einstaklega spennandi er að Félag eldri borgara í Hveragerði fær ekki aðeins einn starfsmann sér til stuðnings heldur í raun og veru alla frístundamiðstöðina, hennar innviði og mannauð sér til stuðnings. Frístundamiðstöðin Bungubrekku er leiðandi á landsvísu þegar kemur að heildrænu frístundastarfi og var á dögunum tilnefnd til íslensku menntaverðlaunanna fyrir fagmennsku í frístundastarfi, metnaðarfulla innleiðingu á gæðaviðmiðum og miðlun á starfi sínu innan sem utan Hveragerðis.
Frístundamiðstöðin Bungubrekka heldur utan um skipulagt frístundastarf í sveitarfélaginu. Þar má nefna frístundaheimili, félagsmiðstöð, ungmennastarf og ungmennaráð, rafíþróttastarf, sumarstarf barna og unglinga, vinnuskóla og núna Félag eldri borgara í Hveragerði. Allt starfsfólk Bungubrekku getur starfað þvert á allt starfið og tekið þátt í verkefnum, undirbúning, viðburðum og öllu öðru sem snýr að því starfi sem tilheyri frístundamiðstöðinni. Stjórn Félag eldri borgara í Hveragerði hefur haldið fundi með forstöðumanni frístundamiðstöðvarinnar og starfsfólki um margs konar samstarf til hagsbóta fyrir bæði yngri og eldri Hvergerðinga. Við erum öll mjög ánægð með þessa spennandi lausn og sjáum fyrir okkur margs konar möguleika og verkefni til að styrkja allt félagsstarf í bænum. Þann 6. desember var haldinn jólafundur Félags eldri borgara á Hótel Örk þar sem 90 manns hlýddu á kynningu á þessu samstarfi sem er farið af stað. Margir lýstu yfir mikilli ánægju með þetta fyrirkomulag.

F.h. Félags eldri borgara Hveragerði

Sigurlín Sveinbjarnardóttir

Myndir frá jólafundi 6. desember.  ljósm: Bjarni Björnsson

Aðventuganga

Aðventuganga
Lionsklúbbur Hveragerðis í samvinnu við Lionsklúbbinn Eden, Hjálparsveit skáta Hveragerði, Heilsustofnun NLFÍ og Félag eldriborgara Hveragerði efnir til stuttrar aðventugöngu sunnudaginn 17. desember 2023 kl. 15:00 Komið verður saman á bílastæði við Grýluvöll (ath. þar sem Hamarshöllin var). Lagt verður upp í um 15 – 20 mínutna göngu upp að vatnsverdar-svæði norðan undir Hamrinum. Þar er komið að notalegu skógarrjóðri og ætla Lionsmenn að afhjúpa þar skilti er á stendur þeirra nafn á lundinum góða. Í lundinum góða gæðir göngufólk sér á heitu kakói ásamt piparkökum. Félagar úr Kallakór Hveragerðis eru hvattir til að koma og eru þeir þá vísir til að standa fyrir fjöldasöng á jólalögum. Eftir kakóhressingu og piparkökuát verður síðan aftur gengið til byggða og hver tekur sína rennireið til síns heima. Allir gönguglaðir Hvergerðingar eru velkomnir til að taka þátt í þessari uppákomu Lionsklúbbs Hveragerðis.
Mætið vel búinn og í góðum gönguskóm.
F.h. Lionsklúbbs Hveragerðis
Formaður Lionslundarnefndar.

Leikhúsferð 6. jan. 2024

Kæru félagar.

Strax eftir áramótin verður boðið upp á leikhúsferð.

Þann 6. janúar  er síðasta sýning á leikverkinu Með Guð í vasanum.  Þetta verk hefur hlotið mjög góðar umsagnir, þannig að við slógum til og pöntuðum miða, þó þetta sé e.t.v. ekki heppilegasti tíminn. Um verkið segir:    Ásta upplifir sig í blóma lífsins þótt hún glími við ýmis veikindi og erfiðleika sem fylgja hækkandi aldri. Ekki bætir úr skák að hjartkær einkadóttirin þvælist dálítið fyrir henni og er hreint út sagt óþolandi stjórnsöm á köflum. Þegar Ásta mætir sínum stærstu áskorunum er gott að eiga öflugan bakhjarl í Guði – ekki síst þar sem segja má að Ásta sé með hann gjörsamlega í vasanum, eða hvað? Það kemur svo í ljós að Guð þarf að láta hendur standa fram úr ermum í þeim miklu breytingum sem standa fyrir dyrum í lífi Ástu. Meðal leikara eru Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Kristbjörg Kjeld Verkið er eftir Maríu Reyndal sem samdi verkið: Er ég mamma mín? sem var geysivinsælt verk.

Sýningin er 6. jan 2024  kl. 20.00

Miðinn kostar  7.100 kr.  Þið pantið  og greiðið í gegnum Sportable. 

Frí rúta verður frá Þorlákssetri og leggur af stað  kl.18.45

 Með kveðju  leikhúsnefnd