Opið hús í Þorlákssetri á Blómstrandi dögum.

Blómstrandi dagar í Þorlákssetri

Opið hús

föstudaginn 17. ágúst kl. 14:00-17:00

laugardaginn 18. ágúst kl. 14:00-17:00.

Kaffi á könnunni, allir velkomnir.

Blómstrandi dagar í Þorlákssetri.

Blómstrandi dagar í Þorlákssetri.

Feðginin Ólafur Beinteinn og Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sópransöngkona bjóða upp á skemmtilega söngdagskrá í Þorlákssetri, félagsheimili eldri borgara í Hveragerði

laugardaginn 18. ágúst nk. kl. 15:00.

Ingibjörg syngur vinsæl sönglög við undirleik Ólafs og hann slær líka á létta strengi með harmónikkuleik,  stýrir hópsöng og leikur ljúfa tónlist undir borðum.

Mætum hress og kát.

Frá ferðanefnd FEBH 2018-2019

Fyrirhugaðar ferðir í ágúst og september.

 

Sumarferð 20. ágúst

Farið kl. 13:00 frá Þorlákssetri

Heimsækjum  Skálholt- saga og menning í 1000 ár.  Erla Traustadóttir sér um leiðsögn um staðinn.

Síðan ekið að Flúðum og heimsækjum hjónin Georg og Emmu hjá Flúðasveppum, þau eru frumkvöðlar í ræktun sveppa og fáum fræðslu um starfsemina. Færum okkur í Farmers Bistró í sömu byggingu og fáum Sælkerahlaðborð:  Sveppasúpa með hvítum matarsveppum, kastaníusveppum og portobello (lactosa og glútenlaus). Heimabökuð hvítlauksbrauð, súrdeigsbrauð og byggbrauð. Papriku- og chilli sulta, paprikusulta. Papriku og sveppa tapenaði, mareneraðir sveppir, sveppasmjör og hvítlauks-og basilsmjör. Kr. 2390 pr. pers.

 

Ekið að Garðyrkjustöðinni Sóltúni.  Það sérhæfa þau sig í jarðarberjarækt. Kynning á starfseminni.                                                                                  

Síðast heimsækjum við Secret LagoonGamla sundlaugin á Flúðum, hún er staðsett í Hverahólmanum á Flúðum fyrir utan byggðina, áhugavert að skoða.

Komið í Hveragerði ca. kl. 18:00              .

Upplýsingar og skráning hjá:

Kristínu Dagbjartsdóttur 860 3884 / 557 4884

Fjólu Ragnarsdóttur 552 1231                                                                                                                                                 

Verð kr. 4650, innifalið:  leiðsögn í Skálholti, súpuhlaðborð hjá Flúðasveppum og rútan. Greiðist í Arion banka reikn. nr. 52 fyrir 16. ágúst.

 

Kynning:  Haustferðin föstud. 14. september kl. 13:00 frá Þorlákssetri.

Korpúlsstaðir skoðað hjá listamönnum.

Ekið Hvalfjörðinn að Hallgrímskirkju í Saurbæ.  Presturinn með fræðslu um kirkjuna.                                                                           Hernámssetrið að Hlöðum skoðað.

Kaffi á Hótel Glym.

Komið í Hveragerði ca. kl. 18:00.

Fréttir af viðhaldi á fasteign félagsins.

Ágætu félagar.

Stjórn félagsins finnst við hæfi að félagsmenn fái fregnir af þeim viðhaldsframkvæmdum á fasteigninni sem hafa verið gerðar.

Viðhald á fasteign FEBH  2017 og 2018:

Allir veggir málaðir.

Gólf hreinsuð og nýtt bón, (gert árlega).

Keypt nýtt sjónvarp og skjávarpi á réttan stað, tæknimál eru komin í viðunandi horf.

Skipt um öll ljós í  loftum.

Í vinnslu að skipta um áklæði á öllum stólum, nokkrir í einu, verkið  er langt komið.

Eldhúsið:  Keypt matarstell fyrir 60 m, súpupottur (rafmagns) og tvöfalt vöfflujárn.

Brunavarnir  fasteignarinnar eru í góðu lagi og vottað af Brunavörnum Árnessýslu.

Stjórnin leggur mikinn metnað í  að hugsa vel um húseignina, til að viðhalda verðmæti hennar.

Með bestu kveðju. Stjórn FEBH.

Þorlákssetur lokað

Kæru félagar

Þorlákssetur verður lokað dagana 25. júni til 2. júli 2018  vegna bónunar á gólfi.