Frá: Jón Vigfús | Hraðlestrarskólinn.is<jovvi@hradlestrarskolinn.is>
Date: mán., 1. nóv. 2021 kl. 10:31
Subject: Hraðlestrarnámskeið fyrir 60 ára og eldri – kynning og afsláttur
To: <torlaksetur@gmail.com>
Daginn.
Ég var að velta fyrir mér hvort að það væri mögulegt að setja kynningu á sérstöku hraðlestrarnámskeiði ætlað 60 ára og eldri og sérstöku afsláttarverði inn á það námskeið – inn á vef hjá ykkur, tölvupósta frá ykkur eða annað efni sem þið notið til að kynna viðburði fyrir 60 ára og eldri.
Hraðlestrarskólinn hóf að bjóða upp á sérstök morgunnámskeið fyrir 60 ára og eldri í september og hafa þau verið mjög vinsæl en í gegnum tíðina hafa 60 ára og eldri verið dugleg að sækja námskeiðið en mig langaði til að bjóða betri kjör fyrir þennan aldurshóp og vera með námskeið sem að skoðaði betur lestur þeirra – og hvernig þau geta bætt lestrarfærni og aukið lestur enn frekar.
Hægt er að sjá kynningarsíðu um námskeiðið hér – www.h.is/60
Þetta eru 3 vikna námskeið – kennt einu sinni í viku – kl. 9-12 – alls þrjú skipti.
– Almennt verð inn á 3 vikna hraðlestrarnámskeið er 51.500 kr. – en þátttakendur á þessu námskeiði – 60 ára og eldri – greiða aðeins 16.900 kr. – og þá er æviábyrgðin samt innifalin og þátttakendur geta því endurtekið námskeiðið – eins oft og þau vilja – frítt.
Námskeiðið er að öllu leyti eins og almenna 3 vikna námskeiðið en ég dreg aðeins úr kennslu á námstækni og bæti inn punktum á lestri á skáldsögum, ævisögum og skoða jafnan vel það lesefni sem þátttakendur vilja helst bæta við sig.
Umsagnir nemenda sem hafa setið námskeiðið:
„Það kemur mér af stað í að bæta leshraðann og með áframhaldi trúi ég að með þessum æfingum geti ég lesið miklu meira en ég geri í dag. Spurning um að afmarka tíma á hverjum degi til þess og taka sig til og lesa meira í bókum mínum.“ – Helga Ingimundar, 67 ára leiðsögumaður
„Þetta þrælvirkar. Bætir lesleikni, hraða og skilning.“ – Jón Hjaltalín Magnússon, 63 ára Verkfræðingur
„Fannst þetta áhugaverð leið til að auka lestur og skilning. Námskeiðið stóð undir væntingum og opnaði sýn á stóraukinn árangur í lestri til framtíðar.“ – Valgeir Már, 72 ára Bílstjóri
„Námskeiðið stóð undir væntingum mínum, var markvisst og áhugavert.“ – Jarþrúður Jónasdóttir, 62 ára
„Námskeiðið var árangursríkt. Náði að 3-4 falda lestrarhraða og auka skilning á lesefninu umtalsvert.“ – Gunnar K., 61 ára Húsasmiður
“Mjög faglegt og gott námskeið. Kennarinn kemur efninu vel frá sér. Persónulega á ég eftir að njóta þess að lesa meira með mun meiri lestrarhraða og auknum skilning.” – Lára, 60 ára Bankaritari.
“Lengi hefur mig langað að bæta lesturinn en ekki fundið tíma. Eftir uppörfun frá ættingjum fór ég á stúfana og varð ekki fyrir vonbrigðum. Ég hef rúmlega tvöfaldað hraðann og er ánægð með það.” – Edda Emilsdóttir, 74 ára húsmóðir.
“Ég hlakkaði til að byrja og er enn ánægðari en ég átti von á.” – Edda Magnúsdóttir, 62 ára sölustjóri.
„Námskeið sem kom verulega á óvart. Mjög fræðandi, vel uppbyggt og skemmtilegt. Árangurinn eftir að hafa fylgt öllum leiðbeiningum eins og ég gat var mun meiri en ég bjóst við. Ég les nú þrefalt hraðar og lesskilningurinn jókst verulega. Bara ánægð. Takk fyrir mig.“ – Þórdís Sigurðard, 61 árs Markhláturþjálfi
Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna um námskeiðið.
Jólahlaðborð
Jólahlaðborð
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á jólahlaðborðið.
Síðandi dagur er á morgun föstudag 5.nóv.
Síma- og tölvukennsla
Opið hús
Hraðlestrarnámskeið
Date: mán., 1. nóv. 2021 kl. 10:31
Subject: Hraðlestrarnámskeið fyrir 60 ára og eldri – kynning og afsláttur
To: <torlaksetur@gmail.com>
Daginn.
—