Fréttir frá stjórn – leikhús og vorgleði.
Fréttir frá stjórn
Nýlega var stofnuð leikhúsnefnd sem mun skipuleggja leikhúsferðir í samráði við stjórn. Nefndin er skipuð eftirfarandi: Kristín Egilsdóttir sími 896 3436 Sigurður Valur Magnússon og Steinunn Þórarinsdóttir. Þetta er dugmikið fólk og nefndin hefur þegar tekið til starfa og og fyrsta leikhúsferðin verður farin í Árnes að sjá „ Láttu ekki deigan síga Guðmundur“ eftir Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, fimmtudaginn 23. mars kl 20:00. Rútuferð frá Þorlákssetri kl 18:30 verð kr 2000 greiðist í Arion banka, reikn 52 merkt rúta. Miðaverð kr 2000 greiðist við innganginn. Vinsamlega skráið ykkur fyrir þriðjud. 21. mars
Einnig hefur nefndin ákveðið leikhúsferð 14. maí kl 20:00 í Borgarleikhúsið að sjá „Ellý“ . Leikhópurinn Vesturport í samstarfi við Borgarleikhúsið setur á svið splunkunýtt leikrit með söngvum um þessa dáðu söngkonu (Ellý Vilhjálms) undir stjórn Gísla Arnar Garðarssonar. Úrvalslið leikara og tónlistarmanna tekur þátt í sýningunni.
Vorgleði FEBH 2017 verður haldin að Hótel Örk miðvikud.19. apríl kl 14:00. Skemmtiatriði. Kaffihlaðborð að hætti Hótel Arkar kr. 1800. Gestir okkar eru Félag eldri borgara á Selfossi. Það hefur skapast sú hefð að félögin hafa vorgleðina til skiptist á milli ára. FEBH mætti á Selfoss 2016. Með bestu kveðju stjórnin.
Þátttökulistar liggja frammi í Þorlákssetri
Skildu eftir svar
Want to join the discussion?Feel free to contribute!