Lífshlaupið

Frá: Bjartur lífsstíll

Skráning í Lífshlaupið hefst 18. janúar!

Ágæti viðtakandi.

Lífshlaupið 2023 hefst 1. febrúar, ætlar þú ekki að vera með í ár?
Skráning

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar þurfi að hreyfa sig minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir þurfi að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.

Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að huga að eigin heilsu með því að stunda reglubundna hreyfingu. Flestir vita hver ávinningur þess að hreyfa sig reglulega getur verið en hér er smá áminning.
Reglubundin hreyfing stuðlar að bættum svefni, bættum lífsgæðum, dregur úr líkum á ýmsum sjúkdómum og styrkir hjarta- og æðakerfið

Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka

Með Lífshlaups-appinu er einfalt að skrá sína hreyfingu á meðan á Lífshlaupinu stendur. Í smáforritinu er hægt að skrá og sjá alla hreyfingu viku aftur í tímann. Þar er einnig hægt að lesa hreyfingu beint úr Strava. Það er þó rétt að benda á að það þarf að fara á vefsíðu Lífshlaupsins til þess að stofna aðgang og til þess að stofna lið/ganga í lið, en eftir að það er búið er hægt að skrá sig inn í gegnum smáforritið og skrá alla hreyfingu þar. Smáforritið finnst bæði í App Store (iOS) og í Play Store (Android) undir heitinu „Lífshlaupið“. Einnig er hægt að nálgast það með því að smella hér ef þú ert í Iphone en hér ef þú ert að nota Android.

Skráningarferlið er einfalt og þægilegt og fínar leiðbeiningar má finna r.

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið gefa Hrönn Guðmundsdóttir og Linda Laufdal, starfsmenn Fræðslu- og almenningssviðs ÍSÍ á netfanginu lifshlaupid@isi.is eða í síma 514-4000

Á meðan Lífshlaupið stendur yfir eru heppnir þátttakendur dregnir út alla virka daga í Morgunverkunum á RÁS 2, þeir heppnu fá ávaxtabakka frá Ávaxtabílnum.
Átta þátttakendur eru svo dregnir út í myndaleik Lífshlaupsins sem fá veglega vinninga frá eftirfarandi samstarfsaðilum:
Ávaxtabíllnum,  MjólkursamsölunniSkautahöllinni,  Klifurhúsinu,  World Class,  Primal og Lemon

Taktu þátt, vertu fyrirmynd og hvettu fólkið í kringum þig til þess að taka þátt í Lífshlaupinu 2023

Með Lífshlaupskveðju

Fréttabréf vorönn 2023

Fréttabréf Félags eldri borgara í Hveragerði í janúar 2023

Kæru félagar. Gleðilegt nýtt ár og bestu þakkir fyrir hið liðna. Við hvetjum ykkur til að taka þátt í hollri hreyfingu og margs konar góðri iðju í félaginu okkar. Meðfylgjandi er stundatafla vormisseris sem í þetta sinn skiptist í tvö 10 vikna tímabil. Mánudaginn 23. janúar hefjast fyrstu námskeiðin og stendur það tímabil fram að páskum. Eftir páska hefst nýtt tímabil, einnig 10 vikur, sem stendur fram í fyrstu viku júni. Hægt er að velja bæði tímabilin, þ.e. 20 vikur, eða kannski aðeins fyrir páska eða eftir páska, 10 vikur hvort tímabil.

Nú verða í boði tvö ný námskeið í Þorlákssetri: Námskeiðið „Að lesa ljóð og yrkja ljóð“ er byggt upp á einföldum skrifæfingum sem ganga út á að láta þátttakendur líkja eftir góðri fyrirmynd og vinna síðan áfram með eigin texta. Þátttakendur fá að lesa upp það sem þeir skrifa eða fá aðra til þess. Einnig verður stefnt að upplestri eða ljóðasýningu í lokin. Þátttakendur eiga að hafa með sér penna/blýant og blöð til að skrifa á eða tölvu. Kennari er Anton Helgi Jónsson. Einnig námskeiðið; “Að hekla körfu” stutt námskeið þar sem þátttakendur læra að hekla stóra körfu í tveim litum að eigin vali, með heklunál nr. 5,5. Farið er yfir heklutáknin og uppskriftarlæsi og er allt garn innifalið í verðinu. Karfan er síðan tilvalin undir garn og annað handavinnudót eða bara hvað sem er. Kennari er Kristjana Björk.

Í haust buðum við upp á vatnsleikfimi í sundlaug Heilsustofnunar og var kennarinn Rakel. Þá komust ekki allir að, við gátum haft tvo hópa (40 manns) en hefðum viljað hafa einn hóp í viðbót. Nú höfum við fengið vilyrði fyrir þriðja hópnum ef þátttaka verður það mikil. Áfram verður boðið upp á Yoga og Yoga nidra í Kapellu Heilsustofnunar og Dansleikfimi í Skyrgerðinni. Síðast en ekki síst ber að geta um allt það frábæra starf sem fer fram í Þorlákssetri, sem allir geta tekið þátt í. Ljósmyndahópurinn sem starfaði líka í fyrra er það stór að ekki er hægt að bæta við þar en þá er alveg upplagt að mynda nýjan hóp, finna nýjan tíma og þeir reyndari hafa lofað að leiðbeina. Kórinn okkar Hverafuglar er á fljúgandi ferð og er meira að segja að fara í vorferð til Gdansk.

Við skráningu á námskeið þarf að skrá fullt nafn, kennitölu, hvaða námskeið, hvaða tímabil, fyrir eða eftir páska eða allar 20 vikurnar. Best og tryggast er að skrá sig með tölvupósti á netfangið torlaksetur@gmail.com. Einnig er hægt að skrá sig í síma 4835216 kl. 13-16; föstud. 13. 1., mánud. 16.1., þriðjud. 17.1. og miðvikud. 18.1.

Nú hefur verið ákveðið að niðurgreiðsla félagsins verði 25% og er búið að reikna þann afslátt inn í verðskána hér að neðan. Eins og áður koma þátttökugjöld fyrir námskeið í heimabankann skömmu eftir skráningu og er gott að ganga frá greiðslum sem fyrst eftir það.

Verðskrá fyrir námskeið á vorönn 2023
– Vatnsleikfimi – fyrir páska kr. 7.100
– Vatnsleikfimi – eftir páska kr. 5.400 (7 skipti vegna 3 frídaga á tímabilinu)
– Yoga kr. 7.700
– Yoga Nidra slökun kr. 7.700
– Dansleikfimi kr. 4.500
– Vatnslitanámskeið kr. 8.600
– Körfuhekl kr. 4.200
– Ritlist ljóða kr. 5.200

Við kynnum síðar margs konar viðburði s.s. leikhúsferðir, ferðalög, fræðsluerindi, skemmtanir og fleira sem er í undirbúningi. Þar eru hugmyndir ykkar afar vel þegnar. Ekki hika við að hringja eða senda tölvupóst ef spurningar eða hugmyndir vakna.

Fyrir hönd stjórnar
Sigurlín Sveinbjarnardóttir, starfandi formaður
Sími; 898 2488, netfang; sigurlinsv@simnet.is

Frá uppstillingarnefnd

Frá Uppstillingarnefnd FEBH
Uppstillingarnefnd FEBH hefur verið falið að leita eftir fólki til stjórnarstarfa næsta kjörtímabil sem er tvö ár.
Aðalfundur félagsins verður 23.02.23 og verða tillögur nefndarinnar að liggja frammi a.m.k tveimur vikum áður.
Starf félagsins hefur verið blómlegt í vetur og margt fólk tekið þátt í margs konar starfsemi á vegum félagsins, auk ýmiskonar skemmtunar. Félagið vex og dafnar og telur nú um 400 félaga. Það er ómetanlegt að eiga gott félag fyrir okkur eldri borgara og slíkt gerist ekki af sjálfu sér. Í stjórn þarf að sitja áhugasamt fólk sem er tilbúið að leggja fram krafta sína. Við óskum eftir fólki með áhuga og reynslu af félagsstörfum.
Við hvetjum þá sem áhuga hafa á að starfa í stjórn að hafa samband við eitthvert okkar í nefndinni.
Með bestu kveðjum

Hólmfríður Árnadóttir s: 6946869 holmarn@ismennt.is
Margrét Magnúsdóttir s: 863 7467 reykjarkot@internet.is
Eyvindur Bjarnason s: 893 0324 kjarrheidi10@gmail.com

Jólakveðja til félagsmanna 2022

Kæru vinir í Félagi eldri borgara í Hveragerði. Nú förum við að huga að því að taka hlé frá félagsstörfum fram yfir áramót og njótum tímans með ættingjum og vinum yfir hátíðarnar.

Það er gaman að rifja upp hvernig jólin voru í uppvexti okkar flestra þegar rafmagn var ekki komið á öll byggð ból og alls ekki jólaskreytingar eins og þær sem við sjáum nú prýða bæinn okkar. Ég var víst orðin 8 ára þegar rafmagnið kom nokkuð stöðugt í sveitina mína. Við vorum með þeim fyrstu til að hengja upp litaðar ljósaperur í eitt tréð í garðinum og vakti það mikla forvitni hjá nágrönnum. Kannski eigið þið svipaðar minningar frá bernskunni?

En hvað verður á döfinni á nýju ári í FEB Hveragerði. Hér nefni ég helstu atriði: Það verður sent út fréttabréf og ný stundatafla um 10. janúar 2023; í tölvupósti, á heimasíðu, í sms og með pósti. Skráning í námskeiðin verður 11., 12. og 13. janúar, bæði í síma og með tölvupósti. Starfsemi í Þorlákssetri sem ekki kostar getur byrjað eftir áramót þegar hópstjórar og félagar óska.

Aðalfundur verður haldinn 23.02.23. Þar verður kosið í nokkur embætti og verður það kynnt með lögboðnum fyrirvara. Áslaug Guðmundsdóttir, kosinn formaður, hefur tilkynnt á stjórnarfundi 9.12. sl. að hún vilji ekki vera áfram.

Við í stjórninni sendum ykkur hlýjar jóla- og nýárskveðjur með kæru þakklæti fyrir það liðna. Við hlökkum til að hitta ykkur eftir áramót.

Sigurlín, starfandi formaður.

Jólahlaðborð

Jólagleði Félags eldri borgara í Hveragerði fimmtudaginn 1. des. nk. á
Hótel Rangá

Þá er komið að kynningu á Jólagleði FEB Hveragerði 1. 12. 2022. Við förum í rútu og leggjum af stað
frá Þorlákssetri kl. 13.30. Ekið verður sem leið liggur austur að Hótel Rangá. Það verður fallegur
upplestur í hátalakerfinu á leiðinni: Hlíf S. Arndal mun lesa upp úr skáldverki Gunnars Gunnarssonar,
Aðventu.
Á Hótel Rangá fáum við 7 rétta jólamatseðil sem borinn verður á borðin. Fyrst rjómalöguð
villisveppasúpa, þá forréttartvenna: villibráðarpaté og grafinn lax á salatbeði, síðan aðalréttatvenna:
purusteik og lambafillet með sykurgljáðu smælki og soðsósu. Eftirréttur er súkkulaðiostakaka og
sörur.
Einnig er boðið upp á sérstakt tilboð á drykkjum með matnum: Santa Sofia Pinot grigio hvítvínsglas á
kr. 1500, Finca Las Moras Tempranilla rauðvínsglas á kr. 1500 og kranabjór á kr. 1000.
Á meðan á borðhaldinu stendur birtist tónlistarfólk úr héraði og syngur nokkur lög fyrir okkur.
Ef til vill verða einhverjir sem vilja halda uppi góðri stemningu með söng í rútunni á leiðinni heim.
Hámarksfjöldi er 70 manns. Verðið er niðurgreitt eins og áður og kostar kr. 7000 á mann fyrir rútu og
mat. Innheimt verður gegnum heimabanka.
Umsjón og skráning er í höndum Sigurlínar á netfangi sigurlinsv@simnet.is eða síma 898 2488.
Betra er að senda tölvupóst til að forðast bið eftir símtali, allir fá svar samdægurs. Skráningartíminn
er kl. 15.00 til 18.00; þriðjudag 22.11., miðvikudag 23.11., og fimmtudag 24.11.2022.
Munið, það þarf að skrá nafn og kennitölu!

Fh. stjórnar
Sigurlín Sveinbjarnardóttir, starfandi formaður

Fræðslukvöld

Kæru félagar
Félag eldri borgara í Hveragerði býður upp á fræðslukvöld í Þorlákssetri
föstudaginn 18. nóv. kl 19:30
Við höfum fengið til okkar Sigrúnu Huld Þorgrímsdóttur með
fræðslufyrirlesturinn „Þroskaverkefni ellinnar” en hann er klukkutíma langur um
þær áskoranir sem gjarnan fylgja hækkandi aldri, einkum á félagslegu og geðrænu
sviði.
Sigrún Huld Þorgrímsdóttir er hjúkrunarfræðingur að mennt og hefur starfað við
hjúkrun lengst af starfsævinni. Hún hefur starfað á öldrunarsviði frá því um
aldamót og jafnframt sótt framhaldsnám í öldrun við hjúkrunarfræðideild Háskóla
Íslands þaðan sem hún lauk meistaraprófi árið 2008. Hún hefur sérfræðileyfi í
öldrunarhjúkrun frá Embætti landlæknis.
Auk þess mun Sigrún Huld kynna bók sína „Ný menning í öldrunarþjónustu“ sem
út kom árið 2019.
Um bókina.
Viðhorf almennings til félagslegrar þjónustu hafa gjörbreyst síðustu áratugi. Fólk
hafnar stofnanaþjónustu og „pakkalausnum“ hins opinbera sem eru eins fyrir alla
og krefst einstaklingsmiðaðrar þjónustu í einni eða annarri mynd. Raddir okkar
dagar kalla á valfrelsi, sjálfræði og notendastýrða þjónustu.
Aldraðir víða um lönd taka í vaxandi mæli undir ný viðhorf og nýjar kröfur, að fá
að njóta valfrelsis og sjálfræðis þótt þeir þurfi á þjónustu og aðstoð að halda.
Lykillinn að lífsgleði er ekki síst sá að fá að lifa með reisn þar sem reynsla og
persónuleiki hvers og eins fær notið sín.
Í þessari bók er þróun öldrunarmála rakin og sagt frá margvíslegum skrefum til
framfara, m.a. á Norðurlöndum og í Bandaríkjunum. Lýst er kostum og göllum
nýrra aðferða og stefnumiða og loks sagt frá þróun öldrunarmála hér á landi og
hvaða valkosti megi telja vænlega í náinni framtíð.
Hjartanlega velkomin
Stjórnin

Málverkasýning

Helga Haraldsdóttir ætlar að vera með opnun á málverkasýningu sinni næsta miðvikudag 9. nóv. kl. 17:00

Allir hjartanlega velkomnir

Leshópur

Heil og sæl
Við hittumst um daginn nokkrar konur sem hafa áhuga á að halda áfram með
leshópinn/bókmenntahópinn sem starfræktur var á vegum FEBH, en með örlítið breyttu formi. Við
viljum kanna hvort fleiri hafi áhuga.
Hugmynd okkar er að fundirnir verði frjálslegir og á hverjum fundi lesi 2-4 aðilar, sem ákveðnir eru á
fundinum á undan, sjálfvalið efni. Það má vera kafli úr skáldsögu, smásaga, fræðigrein úr bók eða
tímariti, nokkur ljóð eða hvaðeina sem viðkomandi finnst áhugavert. Jafnframt þarf viðkomandi að
kynna höfund, kynna bókina eða fjalla aðeins um efnið. Eftir hvern lestur verði boðið upp á
umræður. Þetta býður upp á fjölbreytni og ef til vill hvatningu til að kynna sér eitthvað sem annars
hefið ekki þótt áhugavert. Einnig verði að hausti valin ein bók sem allir lesi yfir „önnina“ og verði hún
tekin til umræðu undir lok „annarinnar“. Sama gert að vori. Auðvitað koma svo aðrar hugmyndir til
greina.
Við sjáum að á dagskrá FEBH er laus tími í Þorlákssetri á föstudagsmorgnum og gætum við þá verið
þar kl. 10:30-12. Viljum við prófa þann tíma, hann er betri en tíminn sem við höfðum síðast.
Það væri gott ef þeir sem áhuga hafa hefðu samband við mig (hlifarndal@gmail.com, s. 691-8367).
Við ætlum að byrja föstudagsmorguninn 4. nóvember kl. 10:30 og er öllum áhugasömum frjálst að
koma og vera með, hvort sem þeir eru búnir að hafa samband eða ekki. Til að byrja með verðum við í
innri salnum, en ef fjölmenni verður færum við okkur yfir í stærri salinn.
Með bestu kveðju,
Hlíf S. Arndal, fyrir hönd hópsins.

Sviðaveisla

Sviðaveisla á vegum FEB Hveragerði þann 11.11 kl. 19 í Rósakaffi.

Kæru félagar í Félagi eldri borgara í Hveragerði.  Á hugmyndafundinum okkar í maí sl. kom fram áhugi á að halda sviðaveislu.  Þá er við hæfi að það verði að veruleika núna við lok sláturtíðar, föstudaginn 11. nóvember kl. 19 í Rósakaffi.  Við höfum fengið mjög gott tilboð þar, og félagið niðurgreiðir enn um helming, svo við getum boðið ykkur máltíðina; svið (heit eða köld) með kartöflustöppu og rófustöppur á kr. 1000 á mann.  Einnig verða drykkjarföng á mjög góðu verði.  Karlakórinn hefur gefið vilyrði fyrir að líta við hjá okkur.  Er til nokkuð þjóðlegra á Gormánuði en SVIÐ, BJÓR OG KARLAKÓR?

Staðfesta þarf þátttöku með því að svara tölvupósti eða hringja í síma 4835216 í Þorlákssetri  í síðasta lagi föstudaginn 4.11.  Vakt verður við símann þriðjudaginn 1.11, miðvikudaginn 2.11 og fimmtudaginn 3.11,  kl. 13-16

Við munum svo taka á móti ykkur við dyrnar og merkja við á þátttökulistanum. Þið greiðið síðan ykkar hlut við kassann í Rósakaffi.

Með bestu kveðjum

Stjórnin

Málverkasýning

Helga Haraldsdóttir ætlar að hafa málverkasýningu í bókasafni Hveragerðis í Sunnumörk

frá 3. nóvember og fram að jólum.