Sparidagagestir í Þorlákssetri.

Nú eru Sparidagar á Örkinni og ætlum við því að taka á móti gestum í Þorlákssetri á morgun þriðjudag 20. mars 2018 kl. 10.00.  Þau koma frá Vestmannaeyjum, Húsavík, Ísafirði, Reykjavík og víðar. Endilega látið sjá ykkur.

Kaffi og jólakaka á boðstólum.

 

Ath. breyting á miðvikudagsfundi 14. mars.

Góðir félagar. Heimsóknin á listsafnið frestast um eina viku af óviðráðanlegum ástæðum.

Á morgun miðvikud. 14. mars verður opið hús í Þorlákssetri, kaffi og jólakaka. Fólk er beðið um að mæta til skrafs og ráðagerða með hausinn fullan af hugmyndum.

Miðvikudaginn 21. mars mætum við kl. 13 á Listasafn Árnesinga og fáum leiðsögn um tvær nýjar sýningar.

 

Miðvikudgsfundur 14. mars á listasafninu

Miðvikudaginn 14. mars verður fræslu- og spjallfundur félagsins haldinn á Listasafni Árnesinga. Við mætum á safninu kl. 13 og Inga safnstjóri kynnir tvær nýopnaðar sýningar: Undirstaða og uppspretta – sýn á safneignina og Þjórsá – Borghildur Óskarsdóttir.

Ferð á Hvolsvöll.

 Lava Center Hvolsvelli

Félag eldri borgara Hveragerði ætlar að heimsækja Lava Center Hvolsvelli föstudaginn 16. mars.

Farið frá Þorlákssetri með rútu kl 13:00.   Verð í rútuna er kr 1500 greiðist í Arion banka  reikn nr 52 merkt rúta.

Sýning + kvikmynd  sem tekur 12mín, verð fyrir  67 ára + er kr 2400  greiðist við innganginn. Katla veitingastaður er opinn.    Eftir sýningu er hægt að fá sér veitingar að eigin vali , kaffi og meðlæti eða súpu og  greiðir hver fyrir sig.  Ekki hægt að panta.  Posi á staðnum.

Skráið ykkur á lista í Þorlákssetri eða hjá ferðanefnd.    Kristín Dagbjartsdóttir sími  557 4884 // 860 3884                                                     Fjóla Ragnarsd sími: 552 1231.  Bjarni Björnsson sími: 475 1366

Miðvikudagsfundur 7. mars.

Við minnum á miðvikudagsfund fræðslu- & skemtinefndar á morgun, klukkan 13. Fundurinn ber yfirskriftina „Kjaftavaðall & Kvæðamenn“

Gestir fundarins eru Björn Pálsson, sagnfræðingur, Guðbrandur Valdimarsson, Gísli Garðarsson og úr fjarska…Kristján Runólfsson.

Gómsæt súpa verður framreidd úr nýjum súpupotti kl. 12.30.

Ef gestir eiga einhverjar skemmtilegar vísur í handraðanum þá er þeim guðvelkomið að koma fram og flytja þær…Við skorum á ykkur…

Fræðsla og spjall miðvikudaginn 28. febr.

Fræðslu- og spjallfundur með Magnúsi Þór tónlistarmanni, sem vera átti s.l. miðvikudag, verður haldinn á miðvikudaginn kemur, 28. febr. kl.13.00 í Þorlákssetri

Miðvikudagsspjall fellur niður.

Vegna mjög slæmrar veðurspár á morgun miðvikudaginn 21. febrúar fellur niður fræðslu- og spjalltíminn með Magnúsi Þór Sigmundssyni tónlistarmanni sem átti að vera Vonandi verður hægt að halda það síðar.

Fræðslu- og spjallfundir næstu miðvikudaga:

Næstu fræðslu- og spjallfundir verða:
Miðvikudaginn 21. febrúar kl. 13.00
Magnús Þór Sigmundsson tónlistarmaður verður með eitthvað skemmtilegt
Miðvikudaginn 28. febrúar kl. 13.00
Ljóðasetur í umsjón Sigurðar Blöndal
Kaffi og meðlæti.

Frá gjaldkera varðandi greiðslu félgsgjalda til FEBH

Vakin er athygli á að þeir félagsmenn FEBH, sem greiða árgjaldið fyrir 1. mars, spara sér að fá senda innheimtuseðla með tilheyrandi kostnaði.

Vegna sundleikfimi FEBH á Heilsustofnun.

Vakin er athygli á að leikfimitíminn hefur verið styttur í 30 mín., en fólki er velkomið að koma fyrr og fara í pottana. Til að þjálfunartíminn nýtist sem best, er æskilegt að allir séu komnir tímanlega og tilbúnir í lauginni þegar tíminn á að hefjast.