Leshópur
Ákveðið hefur verið að leshópurinn sem hefur verið á mánudögum kl. 10-12
færist á föstudaga kl. 13-15
Kveðja
Marta Hauksdóttir, ritari
Ákveðið hefur verið að leshópurinn sem hefur verið á mánudögum kl. 10-12
færist á föstudaga kl. 13-15
Kveðja
Marta Hauksdóttir, ritari
Kæru félagar,
Sigurður Valur og Lena sem eru hópstjórar fyrir útskurðinn ætla að hittast næstkomandi föstudag 17/9 í handavinnustofu skólans og ákveða þar með frramhaldið. Allir hjartanlega velkomnir að taka þátt og mæta kl. 13:30
Komið þið sæl félagar
Komið þið öll sæl.
Góðan dag,
Atli Freyr Hjaltason heiti ég og er þjóðfræðingur. Í sumar vinn ég hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, við viðtalsrannsóknir á gömlu dönsunum. Ég sendi þetta bréf til Félags eldri borgara Hveragerði til þess að sjá hvort þið vitið um einhverja sem stundað hafa gömlu dansana og væru ef til vill til í að hitta mig. Ég verð á ferðinni í sumar og hafði hugsað mér að heimsækja fólk ef það er til í viðtal.
Ég leita að dönsurum, tónlistarmönnum, dansstjórum og fólki sem hefur gaman að gömlu dönsunum.
Það væri frábært ef þið vissuð um einhverja og gætuð komið mér í samband. Endilega sendið mér línu ef ég get svarað spurningum sem kunna að vakna.
Bestu kveðjur,
Atli Freyr Hjaltason
Góðan dag
Nú ætlum við hjá FEBH að slá í leikhúsferð. Förum að sjá Nei Ráðherra í leikhúsinu okkar hér í Hveragerði föstudaginn 28/5 Þarf helst að láta vita í síðasta lagi fimmtudaginn 20/5 hve margir ætla að fara.Vinsamlega svarið sem allra fyrst með nafni, kennitölu og símanr. Þau þurfa að hafa það út af Covid 19Bestu kveðurMarta Hauksdóttir, ritari
Komið þið sæl félagar,
Við sendum félögum okkar í FEBH okkar bestu kveðjur með ósk um bjartari og öruggari daga framundan.
Aðalfundinum verður frestað um óákveðinn tíma svo og öðru starfi.
Stjórnin
Nokkuð hefur verið um það í gegnum árin að hópar, samtök og eða klúbbar ýmisskonar hafi tekið sig saman í ferðir um Snæfellsnesið fagra með viðdvöl í gistingu og eða eftirminnilega matarupplifun á Langaholti, enda staðsetning hótelsins mjög hentug. Nú eru skrítnir tímar og því hefur fólk frekar kosið að njóta sveitasælunnar eitt og sér eða í smærri hópum sem eðlilegt er. Við höfum hlýtt Víði í hvívetna og höfum því takmarkað herbergjaframboð okkar hverju sinni til að tryggja þægilega og streitulausa upplifun gesta okkar og erum því tilvalinn staður til að njóta sveitasælunnar í kyrrð og ró. Hótel Langaholti er rómað fyrir góðan mat, góða þjónustu, afslappað andrúmsloft og fallegt umhverfi.
Langaholt hefur nú þegar opið fyrir einstaklingsbókanir og smærri hópa, svo þegar að bólusetningum líkur eða Þegar samkomutakmörkunum sleppir og óhætt er fyrir stærri hópa að koma saman tökum við glöð á móti fyrirspurnum fyrir hópinn ykkar.
Langholt bíður ykkar fólki eftirfarandi tilboð á gistingu í vetur. Tilboðið Gildir til 31. maí 2021 Tilboðið gildir jafnt fyrir einstaklingsbókanir sem og hópa.
morgunverður er innifalinn ásamt kaffi og tei á meðan dvöl stendur.
Eins manns herbergi í eina nótt ……………………………… 10.000 kr.
Tveggja manna herbergi í eina nótt …..…………………… 15.000 kr.
Þriggja manna herbergi í eina nótt ………………………… 20.000 kr.
Nótt tvö og fleiri nætur bjóðum við svo á hálfvirði !
Eins manns herbergi í tvær nætur ………….… Samtals 15.000 kr. (seinni nóttin þá á 5.000 kr.)
Tveggja manna herbergi í tvær nætur ………. Samtals 22.500 kr. (seinni nóttin þá á 7.500 kr.)
Þriggja manna herbergi í tvær nætur ……….. Samtals 30.000 kr. (seinni nóttin á 10.000 kr.)
Sé um stærri hópa (10 manns eða fleiri) að ræða erum við svo ennfrekar tilbúin að setjast að samningaborðinu varðandi hópafslætti á matarverðum ofl. Og þá sér í lagi á virkum dögum!
Áhugasamir sendi fyrirspurnir á langaholt@langaholt.is eða hringi í síma 435-6789
Skoðið endilega síðurnar okkar https://langaholt.is/islenska/ Og https://www.facebook.com/langaholt/
Þeir sem vilja bóka á tilboðinu “geri grein fyrir sér” með tilvísun í tilboðið til að tryggja sér þessi sér verð !
Gjafabréfin okkar
Gjafabréfin okkar eru vinsæl enda hentug við allskonar tilefni og margir möguleikar í boði.
Gjafabréfin okkar gilda allt árið um kring nema um annað sé samið og hafa engan fyrningardag.
Hægt er að nota ferðagjöf ríkisstjórnarinnar við gjafabréfakaup hjá okkur, en hafa þarf samband við okkur beint í þeim tilfellum svo hægt sé að afgreiða kaupin.
Við sérsníðum einnig gjafabréf að þinni ósk, með þínum texta og þeirri upphæð sem þú vilt gefa í gjöf
Við erum samningsfús og magnafslættir ætíð í boði. Áhugasamir sendi tölvupóst á topcat@langaholt.is
Sért þú viðtakandi góður áhugasamur um að áframsenda eða kynna tilboðið þínu fólki eru hjálögð tvö skjöl sem bæði innihalda tilboðin. Eitt með góðri lýsingu á herbergjum og kynningu á matar upplifuninni sem hentar að senda sem viðhengi í tölvupósti og annað A4 plakat sem hentar til að hengja upp á viðeigandi stað.
Með fyrirfram þökk og kærri kveðju
Starfsfólk Langaholts
Kær kveðja/Best regards
Eyþór Österby Christensen
Fjármál/Finance
Langaholt
Snæfellsnes
Iceland
Tel +354-773-1505