Jólahlaðborð

Þessa tilkynningu fengum við frá STRACTA hotel fyrir helgina.

  • Fjöldatakmörkun verður 50 manns í rými og munum við vera með 50 manna hólf með sér jólahlaðborði í hverju fyrir sig.
  • Afgreiðslutími styttist til 22:00 og þurfa gestir að vera farnir 23:00. Í ljósi þess hvetjum við gesti til að mæta snemma í jólahlaðborðið sem mun hefjast klukkan 18:00.
  • Grímunotkun verður skylda þegar gengið er að og frá borði sem og þegar matur er sóttur í hlaðborðið.Boðið verður upp á einnota hanska og skipt verður ört um öll áhöld í hlaðborðinu.
  • 1 metra regla verður í gildi.
  • Settar verða upp fleiri spritt stöðvar og gestir hvattir til að spritta sig ört.
  • Þrif verðar aukin á sameiginlegum snertiflötum eins og salernum.
  • Allt okkar starfsfólk mun fara í covid-próf áður en það mætir á vakt
  • Viljum við hvetja gesti okkar til að gera slíkt hið sama fyrir komu.
Förum varlega og virðum tilmæli heilbrigðisyfirvalda.
Kær kveðja,
Starfsfólk Stracta Hótel
Ása gjaldkerinn okkar talaði við þau í morgun og var sagt að við þyrftum ekkert að hafa áhyggjur af covid prófi.  Við erum flestöll ef ekki öll búin að fá þriðju sprautuna.  Við þurfum samt að vera með grímur í rútunni og þegar við förum inn á hótelið
Ef einhver vill fara í hraðpróf þá er það tekið í bílageymslunni undir krónunni það er opið milli 10-12 en þið verðið sjálf að panta prófið á https://www.heilsuvera.is/ hver fyrir sig

FARIÐ VERÐUR FRÁ ÞORLÁKSSETRI LAUGARDAGINN 20. NÓVEMBER KL. 17:45.

Gott að vera tímanlega.

Heilsuvera - Vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar | Heilsuvera
HEILSUVERA.IS
Heilsuvera – Vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar | Heilsuvera

Kóræfing

Stjórn kórsins hefur ákveðið að fella niður kóræfinguna í dag vegna þess að það eru svo mörg Covid smit.
Látum vita hvernig verður í næstu viku

Brids og félagsvist

Við hvetjum alla þá sem hafa gaman af því að spila brids eða félagsvist að taka þátt hér í Þorlákssetri
Félagsvistin er einu sinni í viku, á þriðjudögum kl. 13-16
Brids er tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum kl. 13-16
Kveðja
Stjórn FEBH

Tálgunarnámskeið

Tálgunarnámskeiðið fellur niður um óákveðinn tíma vegna Covit

Jólahlaðborð

ATH: Þaða varð smá misskilningur við Stracta hótel í sambandi við jólahlaðborðið
Það verður laugardaginn 20. nóvember en EKKI föstudaginn 19.nóvember
Kveðja
Marta ritari

Jólahlaðborð

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á jólahlaðborðið.

Síðandi dagur er á morgun föstudag 5.nóv.

Síma- og tölvukennsla

Opið hús

Opið hús verður næsta miðvikudag 10. nóvember kl. 13:00
Við fáum 2 yndslegar söngkonur sem ætla að syngja fyrir okkur nokkur jasslög í anda Ellu Fitzgerald
 
 
Kveðja
Marta ritari

Hraðlestrarnámskeið

Frá: Jón Vigfús | Hraðlestrarskólinn.is <jovvi@hradlestrarskolinn.is>
Date: mán., 1. nóv. 2021 kl. 10:31
Subject: Hraðlestrarnámskeið fyrir 60 ára og eldri – kynning og afsláttur
To: <torlaksetur@gmail.com>

 

Daginn.

Ég var að velta fyrir mér hvort að það væri mögulegt að setja kynningu á sérstöku hraðlestrarnámskeiði ætlað 60 ára og eldri og sérstöku afsláttarverði inn á það námskeið – inn á vef hjá ykkur, tölvupósta frá ykkur eða annað efni sem þið notið til að kynna viðburði fyrir 60 ára og eldri.
Hraðlestrarskólinn hóf að bjóða upp á sérstök morgunnámskeið fyrir 60 ára og eldri í september og hafa þau verið mjög vinsæl en í gegnum tíðina hafa 60 ára og eldri verið dugleg að sækja námskeiðið en mig langaði til að bjóða betri kjör fyrir þennan aldurshóp og vera með námskeið sem að skoðaði betur lestur þeirra – og hvernig þau geta bætt lestrarfærni og aukið lestur enn frekar.
Hægt er að sjá kynningarsíðu um námskeiðið hér – www.h.is/60
Þetta eru 3 vikna námskeið – kennt einu sinni í viku – kl. 9-12 – alls þrjú skipti.
 – Almennt verð inn á 3 vikna hraðlestrarnámskeið er 51.500 kr. – en þátttakendur á þessu námskeiði – 60 ára og eldri – greiða aðeins 16.900 kr. – og þá er æviábyrgðin samt innifalin og þátttakendur geta því endurtekið námskeiðið – eins oft og þau vilja – frítt.
Námskeiðið er að öllu leyti eins og almenna 3 vikna námskeiðið en ég dreg aðeins úr kennslu á námstækni og bæti inn punktum á lestri á skáldsögum, ævisögum og skoða jafnan vel það lesefni sem þátttakendur vilja helst bæta við sig.
Umsagnir nemenda sem hafa setið námskeiðið:
„Það kemur mér af stað í að bæta leshraðann og með áframhaldi trúi ég að með þessum æfingum geti ég lesið miklu meira en ég geri í dag. Spurning um að afmarka tíma á hverjum degi til þess og taka sig til og lesa meira í bókum mínum.“ – Helga Ingimundar, 67 ára leiðsögumaður
„Þetta þrælvirkar. Bætir lesleikni, hraða og skilning.“ – Jón Hjaltalín Magnússon, 63 ára Verkfræðingur
„Fannst þetta áhugaverð leið til að auka lestur og skilning. Námskeiðið stóð undir væntingum og opnaði sýn á stóraukinn árangur í lestri til framtíðar.“ – Valgeir Már, 72 ára Bílstjóri
„Námskeiðið stóð undir væntingum mínum, var markvisst og áhugavert.“ – Jarþrúður Jónasdóttir, 62 ára
„Námskeiðið var árangursríkt. Náði að 3-4 falda lestrarhraða og auka skilning á lesefninu umtalsvert.“ – Gunnar K., 61 ára Húsasmiður
“Mjög faglegt og gott námskeið. Kennarinn kemur efninu vel frá sér. Persónulega á ég eftir að njóta þess að lesa meira með mun meiri lestrarhraða og auknum skilning.” – Lára, 60 ára Bankaritari.
“Lengi hefur mig langað að bæta lesturinn en ekki fundið tíma. Eftir uppörfun frá ættingjum fór ég á stúfana og varð ekki fyrir vonbrigðum. Ég hef rúmlega tvöfaldað hraðann og er ánægð með það.” – Edda Emilsdóttir, 74 ára húsmóðir.
“Ég hlakkaði til að byrja og er enn ánægðari en ég átti von á.” – Edda Magnúsdóttir, 62 ára sölustjóri.
„Námskeið sem kom verulega á óvart. Mjög fræðandi, vel uppbyggt og skemmtilegt. Árangurinn eftir að hafa fylgt öllum leiðbeiningum eins og ég gat var mun meiri en ég bjóst við. Ég les nú þrefalt hraðar og lesskilningurinn jókst verulega. Bara ánægð. Takk fyrir mig.“ – Þórdís Sigurðard, 61 árs Markhláturþjálfi
Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna um námskeiðið.
Hlakka til að heyra frá ykkur.

Kær kveðja,
Jón Vigfús
—————————-
Jón Vigfús Bjarnason
Skólastjóri Hraðlestrarskólans
GSM: 773-0100

Jólahlaðborð

Ákveðið hefur verið að fara sama á Jólahlaðborð það 19. nóvember n.k. Fólk verður látið vita um tímasetningu þegar búið er að panta.
Það er á mörgum stöðum orðið upppantað en við fengum tillboð frá STRACTA hotel á Hellu sem ákveðið hefur verið að taka
Hægt er ð skoða síðuna þeirra á www.stractahotels.is/is/jolaladbord
Jólahlaðborðið kostar kr. 9.900 á mann sem er mjög gott verð.
Það þarf að vera búið að greiða inn á reikninginn okkar í Íslandsbanka fyrir 5. nóvember svo hægt verið að láta þá vita um fjöldann.
Reikningsnr. er 0586-26-2252 kt. 691189-1049
Farið verður saman í rúta sem félagið mun greiða.
Ef nánari upplýsinga er þörf er hægt að hringja í mig síma 8687405 að Ásu gjaldkera í síma 8932775
Bestu kveðjur
Marta, ritari