Fréttir af viðhaldi á fasteign félagsins.
Ágætu félagar.
Stjórn félagsins finnst við hæfi að félagsmenn fái fregnir af þeim viðhaldsframkvæmdum á fasteigninni sem hafa verið gerðar.
Viðhald á fasteign FEBH 2017 og 2018:
Allir veggir málaðir.
Gólf hreinsuð og nýtt bón, (gert árlega).
Keypt nýtt sjónvarp og skjávarpi á réttan stað, tæknimál eru komin í viðunandi horf.
Skipt um öll ljós í loftum.
Í vinnslu að skipta um áklæði á öllum stólum, nokkrir í einu, verkið er langt komið.
Eldhúsið: Keypt matarstell fyrir 60 m, súpupottur (rafmagns) og tvöfalt vöfflujárn.
Brunavarnir fasteignarinnar eru í góðu lagi og vottað af Brunavörnum Árnessýslu.
Stjórnin leggur mikinn metnað í að hugsa vel um húseignina, til að viðhalda verðmæti hennar.
Með bestu kveðju. Stjórn FEBH.
Skildu eftir svar
Want to join the discussion?Feel free to contribute!