Reykjavíkurferð
REYKJAVÍKURFERÐ
Mánudaginn 7. nóvember n.k. er fyrirhuguð dagsferð um Reykjavíkursvæðið. Lagt verður af stað kl. 12.30 og ekið til Bessastaða og staðurinn skoðaður undir leiðsögn. Þaðan verður ekið í Grafarvog í Reykjavík og Korpúlfarnir (félag eldriborgara í Grafarvogi) sóttir heim. Að endingu verður snæddur kvöldverður í Norræna húsinu hjá Sveini Kjartanssyni, sem er uppalinn í Hveragerði eins og flestir vita. Áætluð heimkoma kl. 20 – 21. Samtals verð (matur og rúta) kr. 5500. Greiðist inn á reikn. félagsins, nr. 52 í Arionbanka.
Skráningarblað í Þorlákssetri.
Skildu eftir svar
Want to join the discussion?Feel free to contribute!