Frá gjaldkera.
Félag eldri borgara í Hveragerði: Bankalína 0314 26 52 691189-1049.
Varðar greiðslur til félagsins haustönn 2016 – vorönn 2017. Allar greiðslur til félagsins á að leggja inn á reikning nr 52 í Aríon banka.og auðkenna hvað verið er að greiða í “ skýringu“. Ekki þarf að skila kvittun eða annarri greinargerð um greiðslu til gjaldkera ef skýringar segja nóg. Skýringar t.d.: Árgjald – Kórgj – Sundf – Útskurð – Línud, – Handav – Orgelsj – Þorrabl – Árshtíð – Leikhús – Jóga – Djúpsl -Stólafi – Ferð – og fleira ef til fellur. Nýjir félagar greiði árgjald árið sem þeir ganga í félagið, árgjald 2016 er kr. 3.500.- Þátttaka í félagsstarfi er fyrir skráða félaga. Árgjald 2017 er kr. 3.500.- gjalddagi er 1. jan 2017. Vinsamlega greiðið ekki á þessi ári. Ef greitt er fyrir 1. marz 2017 inn á reikning 52 verður ekki sendur út greiðsluseðill. Greiðsluseðlar vegna ógreiddra árgjalda 2017 verða sendir út með tilheyrandi kostnaði 1. marz 2017.
Þátttökugjald í sundleikfimi er kr. 3.500.- á haustönn 2016.
Þátttökugjald, í Hverafuglum, kór eldri borgara er kr. 5000.- fyrir haustönnina. Markmið er að kórgjöldin mæti helmingi launa söngstjórans . Innh. á vorönn 2017 miðast við að ná því.
Þátttökugjald í útskurðinum er kr. 6.000.- fyrir haustönnina.
Þátttökugjald í línudansi er 2.500-kr. á haustönninni.
Þáttökugjald í stólaleikfimi er kr. 250 fyrir hvert skipti sem fólk mætir. Leiðbeinandinn gerir upp um áramót við félagið sem svo innheimtir hlut þátttakanda hjá hverjum félaga á haustönninni.
Þátttökugjald í djúpslökun er 250,- pr. hvert skipti, sama fyrirkomulag á innheimtu og á stólaleikfiminni.
Varðandi önnur námsskeið er stefnan að þátttakendiur greiði helming launa leiðbeinanda og efni eftir þörfum.
Skorað er þá sem starfa í gjaldskyldum hópum að greiða þátttökugjöldin á haustönninni fyrir 31.10. 2016.
Hveragerði 21.sept. 2016
Egill Gústafsson
gjaldkeri Félags eldri borgara í Hveragerði.
Skildu eftir svar
Want to join the discussion?Feel free to contribute!