Frá gjaldkera um greiðslur á nýju ári
Varðar þátttökugjöld í félagsstarfi á vorönn 2016
og félagsgjald fyrir árið 2016.
Félagsgjald fyrir árið 2016 er kr. 3.500.- Þeir sem greiða árgjaldið fyrir 1. marz n.k. fá ekki greiðsluseðil. Aðrir fá greiðsluseðil með tilheyrandi kostnaði.
Ætlast er til þess að þeir sem sækja afþreyingu í félagsstarfið, séu skráðir félagar og greiði árgjald.
Sundleikfimi á Heilsustofnun NLFÍ. Þátttökugjald kr. 3.500-
Línudans í umsjá Harðar Stefánssonar í Þorlákssetri. Þáttökugjald kr. 2500.-
Útskurður í tré í umsjá Valdemars Ingvasonar í Smíðastofu Grunnskólans. Þátttökugjald kr. 5000.-
Hverafuglar söngæfingar í Þorlákssetri kr. 5.000.- Með fyrirvara um fjölda kórfélaga. (Kórfélagar gr. 50% af launum söngstjórans)
Verði námsskeið, ferðalög eða aðrar gjaldskyldar uppákomur á vegum félagsins, verða þátttökugjöld auglýst samhliða annarri kynningu.
Þátttökugjöldin óskast greidd inn á reikning Félags eldri borgara í KB banka fyrir 10. febr. 2016. Verði þátttökugjöldin ekki greidd, verða sendir út greiðsluseðlar.
Bankalínan er 0314 26 52 kt. 691189-1049. Í skýringu komi fram fyrir hvað verið er að greiða.
11.jan 2016
Fh. stjórnar félags eldri borgara
Egill Gústafsson gjaldkeri.
Skildu eftir svar
Want to join the discussion?Feel free to contribute!